01 · Vorbraut 21–27

Heillandi búseta í Garðabæ

Fjögur heimili í Hnoðraholti

Framhlið Vorbrautar 21–27 — tölvumynd

Við Vorbraut 21–27 í Hnoðraholti í Garðabæ rís raðhúsalengja með fjórum heimilum. Hvert hús er á tveimur hæðum með eigin bílskúr, sérverönd við jarðhæð og svalir á efri hæð. Húsin fjögur eru eins að gerð, svo hver fjölskylda fær sömu rýmisskipan og sömu birtu. Lengjan stendur hátt í landinu þar sem stutt er í ósnortna náttúru, fjölbreytta þjónustu og helstu samgönguæðar.

  • Fjögur raðhús
  • Tvær hæðir og bílskúr
  • Hnoðraholt, Garðabær
Vorbraut 21–27 að kvöldi — tölvumynd
TölvumyndMynd 01·B Sama sjónarhorn að kvöldi — tölvumynd.