03 · Heimilin
Húsin
Fjögur heimili, sama góða skipanin
Hvert hús við Vorbraut 21–27 er á tveimur hæðum með þremur svefnherbergjum og eigin bílskúr. Á efri hæð er einnig 8,6 m² fjölnotaherbergi sem getur nýst sem fjórða herbergið, til dæmis sem svefnherbergi, vinnuherbergi eða sjónvarpshol. Húsin fjögur eru eins að gerð og á lýsingin því við um þau öll. Einungis er lítilsháttar munur á stærð veranda og bílskúra.
Rýmisskipulag húsanna er óhefðbundið en vel hugsað út frá staðsetningu þeirra. Á jarðhæð eru svefnherbergin, baðherbergið, þvottahúsið og fjölskylduherbergið, en á efri hæð eru eldhús, borðstofa og stofa ásamt salerni og fjölnotaherbergi. Með þessu fyrirkomulagi nýtur aðalrými heimilisins birtunnar og útsýnisins yfir holtið, þar sem samverurýmin njóta sín hvað best.
Á jarðhæð er gengið beint út á sérverönd, um 30 m², sem tengir heimilið við garðinn. Frá efri hæðinni liggja svalir til suðurs og vesturs, samtals um 37 m², svo útiveran fylgir sólinni yfir daginn.
Bílskúrinn, um 30 m², er innangengt úr anddyrinu. Á jarðhæð eru einnig þvottahús, geymsla og fataherbergi, svo dagleg umsýsla fer fram á sömu hæð og hún fellur til.
- Þrjú svefnherbergi + fjölnotaherbergi
- Bílskúr um 30 m²
- Sérverönd á jarðhæð
- Stofa og eldhús uppi