02 · Hönnun
Arkitektúr
Samfelld lengja í samhljómi við Hnoðraholt
Arkitektúr Vorbrautar 21–27 er yfirvegaður og stílhreinn. Húsin fjögur mynda samfellda lengju þar sem hvert heimili les sig skýrt út úr heildinni án þess að rjúfa hana. Bílskúrinn er felldur inn í grunnform hvers húss frekar en að standa sem viðbygging, og stallarnir í lengjunni fylgja landinu svo byggingin sitji lágt í brekkunni.