04 · Sjónarhorn

Útsýni

Samverurýmin uppi, móti birtunni

Húsin standa hátt í opnu og hæðóttu landi og njóta víðsýnis yfir bæinn og náttúruna í kring. Þess vegna eru eldhús, borðstofa og stofa á efri hæðinni, þar sem birtunnar og útsýnisins nýtur best, en svefnherbergin á jarðhæð.

Stórir gluggar og svalir til suðurs og vesturs opna heimilið út að umhverfinu og hleypa dagsbirtunni vel inn. Þannig verða útsýnið og náttúran hluti af heimilinu og gefa samverurýmunum aukna vídd.

Útirými

Útirýmin eru eðlilegt framhald af heimilinu á báðum hæðum. Á jarðhæð er um 30 m² sérverönd með beinu aðgengi frá húsinu og góðri tengingu við garðinn. Á efri hæð eru svalir til suðurs og vesturs, samtals um 37 m², sem gefa möguleika á að njóta sólar og útsýnis á mismunandi tímum dags.

Tölvumynd af sérverönd á jarðhæð með viðarpalli, heitum potti og skjólveggjum úr viði
Mynd 04·A Sérverandirnar á jarðhæð, um 30 m², með skjólveggjum milli húsa.
Vífilsstaðavatn og golfvellirnir í Vetrarmýri úr lofti
Mynd 04·B Vífilsstaðavatn, golfvöllurinn og fjallahringurinn.