02 · Hönnun

Arkitektúr

Samfelld lengja sem fylgir landinu

Arkitektúr Vorbrautar 21–27 er stílhreinn og formin einföld. Húsin fjögur mynda samfellda lengju og hvert heimili greinist skýrt frá hinum án þess að heildin rofni. Bílskúrinn er felldur inn í grunnform hvers húss í stað þess að standa sem viðbygging, og stallar í lengjunni fylgja landinu svo byggingin sitji lágt í brekkunni.